Já júró í kveld og hverjir ætli vinni?? Ég held að Rúmenía
komist lagt og einnig Úkraína annars eru Finnarnir helvíti flottir
og vonandi komast þeir langt. Snilldin ein ef þeir myndu bara
vinna!! Finnum hefur nú barasta aldrei gengið neitt vel, besti
árangur þeirra er held ég 10 sæti árið 70og eitthvað! Þannig að ég
hvet bara alla til þess að kjósa Finnland
Annars er bara helst af mér að frétta að ég er búin að vera
lasin í rúma viku og ætla bara aldrei að ná mér af þessum
andskota!! Svo eru prófin búin og sumarvinnan tekin við af
skólanum. Mér gekk nú bara ágætlega í prófunum,
6 í þýsku og mínum þýskuferli mínum þar með lokið húrra fyrir
því
7 í ensku sem er bara fínt
8 í bókfærslu sem ég nennti bæóvei ekki að læra fyrir
9 í sögu og þjóðhagfræði, svona er ég nú klár
Annars er fótbolta vertíðin alveg að byrja, fyrsti leikur er á
fimmtudaginn, uppstillingardag, gegn Hetti og fer leikurinn fram á
Vilhjálmsvelli á Egilstöðum. Við ætlum að sjálfsögu að vinna en
ekki hvað hehehe. En hvað heldið þið??? er einnhver sem þorir að
spá í spilin???
Jæja nú nenni ég þessu ekki lengur, um að gera að fara gera
eitthvað af viti